{http://visir.is/evroputhingid-samthykkir-vidskiptathvinganir-gegn-islendingum/article/2012120919649}∞{url} Evrópuþingið samþykkti í dag að beita Íslendinga og Færeyinga viðskiptaþvingunum vegna makríldeilunnar, eftir því sem fram kemur í fréttum BBC. Íslendingar og Færeyingar hafa verið gagnrýndir harðlega á síðustu dögum fyrir of miklar veiðar úr makrílstofninum og er talið að þær séu ósjálfbærar. Evrópuþingið er stofnun innan Evrópusambandsins. {Þó}¥{Þó að} refsiaðgerðirnar hafi verið samþykktar á Evrópuþinginu er enn aðeins um tillögur að ræða. Því er ekki þar með sagt að þeim verði beitt gegn Íslendingum. Tillögurnar eiga eftir að fara fyrir ráðherraráðið sem þá þarf að samþykkja þær. Það yrði að öllum líkindum ekki gert fyrr en í október. Eins og fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hefur greint frá samþykkti sjávarútvegsnefnd Evrópuþingsins fyrr á þessu ári tilskipun um refsiaðgerðir gegn ríkjum sem stunda ósjálfbærar veiðar úr sameiginlegum stofnum sem deilt er um, eins og til dæmis makríl, en tilskipunin felur ekki aðeins í sér {löndurbann}${typo,suff,0-2|löndunarbann} á íslensk skip heldur einnig viðskiptaþvinganir eins og takmarkanir á sölu fiskiafurða. {Lisbeth Berg-Hansen}∞{nor}, sjávarútvegsráðherra Noregs, hefur einnig sagt að Norðmenn myndu einnig grípa til ráðstafana. Hún hefur hins vegar ekki viljað gefa upp hvers kyns aðgerðir það eru.