{http://visir.is/islendingar-stjorna-fyrstu-nyskopunarhelgi-irans/article/2012120919653}∞{url} Fyrsta nýsköpunarhelgi í Íran frá upphafi var haldin á dögunum. Íslendingar voru fengnir til að halda utan um dagskrána. Þeir telja að helgin hafi verið stór viðburður í landinu öllu og mikilvægt fyrir Írana að koma verkefnum af þessum toga af stað. Kristján Freyr Kristjánsson, framkvæmdastjóri {Innovit}∞{eng} frumkvöðlaseturs, fór út til Íran og stýrði helginni sem fram fór í {Tehran}§{Teheran} undir yfirskriftinni {Startup Weekend}∞{eng}. „Þau hafa aldrei í landinu haft neins konar viðburð í líkingu við þetta áður," segir hann. Kristján útskýrir að efnahagur {Íran}£{Írans} sé fremur bágborinn sem stendur, en Bandaríkjamenn hafa sett {viðskiptaþvingar}${typo,suff,0-2|viðskiptaþvinganir} á landið vegna kjarnorkuáætlana stjórnvalda. Fyrir vikið virka t.d. engin kreditkort í öllu landinu. „Svo þetta er slæmt ástand. En þrátt fyrir það eru töluverð gæði í öllu," segir Kristján. Hópurinn sem sótti nýsköpunarhelgina var óhemju hæfileikaríkur að mati Kristjáns. Hann telur að atburðir sem þessir geti skapað grósku í atvinnulífinu og blásið hæfileikaríkum einstaklingum {nauðsynlegu sjálfstrausti}£{nauðsynlegt sjálfstraust} í brjóst. „Við vonum að þetta verði smá kickstart. Að menn sjái hvað hægt er að gera með öðrum og nýjum aðferðum," segir hann. Nýsköpunariðnaður í Íran er óplægður akur að mati Kristjáns og spennandi að koma þess háttar starfsemi í gang. 120 einstaklingar tóku þátt í nýsköpunarhelginni þar sem 70 hugmyndir voru kynntar. Í lok helgar voru 10 bestu hugmyndirnar valdar og allir þátttakendur lögðust á eitt við að gera fullmótaðar viðskiptahugmyndir eða jafnvel alsköpuð smáforrit úr þeim. Ástæðan fyrir því að Íslendingar voru fengnir til að stýra helginni í þetta sinn er sú að þeir hafa töluverða reynslu af nýsköpunarverkefnum. Einnig er óvenjuerfitt fyrir Bandaríkjamenn að ferðast til {Íran}£{Írans} og fá vegabréfsáritun þar eins og stendur. Hér að neðan má sjá stutt myndband sem gert var eftir nýsköpunarhelgina í Íran.