{http://visir.is/krofu-um-fravisun-vafningsmalsins-hafnad-/article/2012120919100}∞{url} Kröfu sakborninga í Vafningsmálinu svokallaða um frávísun var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur núna klukkan tvö. Úrskurðurinn, sem Símon Sigvaldason héraðsdómari kvað upp, er ekki kæranlegur til Hæstaréttar. Það voru sakborningar í málinu, þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, sem fóru fram á að málinu yrði vísað frá dómi vegna ágalla á málsmeðferð þegar í ljós kom að tveir lögreglumenn sem störfuðu hjá sérstökum saksóknara höfðu unnið skýrslu fyrir þrotabú {Milestone}∞{eng} sem byggðu á gögnum frá embætti sérstaks saksóknara. Vafningsmálið snýst í stuttu máli um það að þeir Lárus og {Guðmnudur}${meta,stem,nu-un|Guðmundur} eru ákærðir fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína með tíu milljarða króna lánveitingu til {Milestone}∞{eng}. Þórður Bogason, verjandi Guðmundar Hjaltasonar, segir að formlegir ágallar á málsmeðferð málsins hafi verið svo alvarlegir að hann hefði kosið að Hæstiréttur fengi að úrskurða um frávísun málsins. „Mér hefði fundist það vera fullkomlega eðlilegt. Mér finnst að þarna hefði átt að falla með ákærðu í málinu allur sá vafi sem er á formhlið málsins,“ segir Þórður.