{http://www.visir.is/ekki-radid-hvad-tekur-vid-hja-birki/article/2012120929673}∞{url} Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir enn ekki ráðið hvað tekur við hjá honum eftir að hann lætur af störfum sem varaformaður Framsóknarflokksins. Birkir tilkynnti í dag að eftir 15 ára starf í pólitík {hyggðist}${infl|hygðist} hann róa á ný mið eftir líðandi kjörtímabil. „Ég er einungis 33 ára gamall og það er margt sem kemur til greina, en fyrst og fremst mun ég kannski hlúa að fjölskyldunni," segir Birkir, en hann hefur starfað fyrir Framsóknarflokkinn frá 18 ára aldri. „Svo það verður ágætt að halda á önnur mið." „Ég mun náttúrlega verja kröftum mínum á Alþingi næsta vetur og í kosningabaráttu fyrir Framsóknarflokkinn. Svo verður bara framtíðin að skera úr um hvað tekur við," segir hann. Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lýst yfir áhuga sínum á því að taka við varaformannsstöðu í flokknum. „Ég fagna hverjum og einum sem býður fram krafta sína í það verk að veita Framsóknarflokknum forystu," segir Birkir Jón.