{http://www.visir.is/romney-safnadi-milljonum-dollara/article/2012120929606}∞{url} {Mitt Romney}∞{eng}, forsetaefni Repúblikana vestanhafs, safnaði milljónum dollara á tveimur fjáröflunarsamkomum í Kaliforníu í gær til að fjármagna síðustu vikur {kosningabarátunnar}${typo,stem,1-2|kosningabaráttunnar}. 650 stuðningsmenn borguðu á bilinu 1 þúsund til 25 þúsund dollara hver til að hlusta á {Romney}∞{eng} flytja 40 mínútna ræðu á {Grand Del Mar}∞{eng} hótelinu í {Del Mar}∞{eng} í Kaliforníu, skammt frá strandhýsi sem {Romney}∞{eng} á sjálfur á svæðinu.  Síðar sama dag á annarri fjáröflunarsamkomu á {Beverly Hilton}∞{eng} hótelinu söfnuðust 6 milljónir dollara. Peningarnir verða nýttir til að kaupa auglýsingar í þeim ríkjum þar sem er mjótt á munum milli {Romney}∞{eng} og {Barack Obama}∞{eng}. {Romney}∞{eng} hefur sjálfur lýst því yfir að kosningabaráttan þurfi ekki á yfirhalningu að halda eftir að myndband lak á netið, en þar ræðir {Romney}∞{eng} við fjársterka stuðningsmenn og segir að 47 prósent bandarísku þjóðarinnar séu á opinberu framfæri.