{http://www.visir.is/hasar-i-framsokn-/article/2012120929600}∞{url} Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur, segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Höskuldur Þórhallsson, framsóknarmaður, eigi í átökum sem lítið sé reynt að fela. Þetta kom fram á fréttasíðunni Vikudegi en þar fjallar Birgir um fréttir gærdagsins þar sem Sigmundur tilkynnti að hann {hyggðist}${infl|hygðist} bjóða sig fram fyrir Norðausturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Höskuldur hafði degi áður lýst áhuga sínum á því að leiða flokkinn í kjördæminu. Birkir Jón Jónsson, varaformaður, stígur til hliðar og því verða það Sigmundur og Höskuldur sem berjast um fyrsta sætið. „Þeir hafa ekkert rætt þessi framboðsmál sín á milli og samtalið á sér stað í beinni útsendingu fjölmiðla," segir Birgir og þykir það benda til átaka. Birgir segir merkilegt að formaður Framsóknarflokksins vilji bjóða sig fram fyrir landsbyggðina. Hingað til hafa formennirnir reynt að bjóða fram á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur verið yfirlýsing um að flokkurinn vilji sækja meira þéttbýlisfylgi og því gæti ákvörðun Sigmundar gefið ákveðin skilaboð. Birgir telur að margir muni draga þá ályktun að Sigmundur hafi ekki þorað í þéttbýlisslaginn. Hann veit ekki hvað er til í því en þykir meira áhyggjuefni hvort átökin um oddvitasætið í Norðausturkjördæmi muni spilla fyrir flokknum í kosningum.