{http://visir.is/siv-haettir-a-althingi-/article/2012120929499}∞{url} Siv Friðleifsdóttir ætlar ekki að gefa kost á sér í þingframboði fyrir alþingiskosningar í vor. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún birti á vefsíðu sinni í morgun. Siv hefur verið þingmaður frá árinu 1995 og meðal annars gegnt embætti umhverfisráðherra og heilbrigðisráðherra. „Þótt ég muni sjálf ekki vera í eldlínunni í komandi kosningum mun ég leggja allt kapp á að Framsóknarflokkurinn fái góða kosningu um allt land. Sá flokkur hefur að mínu mati lykilhlutverki að gegna á komandi kjörtímabili. Ég hlakka til baráttunnar sem {framundan}${cmp,adv+adv,1-2|fram undan} er," segir Siv í yfirlýsingunni.