{http://visir.is/radist-a-thingmanninn-sigmund-erni-a-bar-a-akureyri/article/2012120929518}∞{url} Ráðist var á þingmanninn Sigmund Erni Rúnarsson þegar hann var staddur á Ljóðahátíð hjá Ljóðaklúbbnum Akureyrska Populus Tremule á bar á Akureyri, {aðfararnótt}¢{cmp,suff,gensg-genpl|aðfaranótt} sunnudags. Í samtali við DV segir Sigmundur Ernir að drukkinn maður í miklu ójafnvægi hafi veist að honum með ofbeldi. Sérsveitarmaður var á staðnum, yfirbugaði manninn á augabragði og kom þannig þingmanninum til bjargar sem slasaðist ekki við árásina. Sigmundur þakkar sérsveitarmanninum fyrir skjót viðbrögð enda óvíst hvernig hefði farið, hefði hann ekki gripið inn í.