{http://www.visir.is/fundu-adur-othekktan-virus-sem-likist-sars/article/2012120929358}∞{url} Áður óþekktur vírus, þó ekki ólíkur þeim sem kallaðist SARS og varð hundruð manna að bana árið 2003, hefur greinst í manni sem nú er verið að meðhöndla á bresku sjúkrahúsi. Flogið var rakleiðis með manninn, sem er 49 ára, á spítala í Lundúnum frá {Qatar}€{foreign,eng|Katar} þaðan sem maðurinn er frá. Hann er þó ekki fyrsti sem greinist því karlmaður frá {Saudi Arabíu}€{foreign,eng|Sádi-Arabíu} greindist fyrr í mánuðinum en er nú látinn vegna hans.  Sérfræðingar eru enn að reyna að átta sig á hversu alvarlegur vírusinn er og hvort auðveldlega sé hægt að lækna fólk sem greinist.  Þá hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ekki mælt með að fólk ferðist ekki til ákveðinna svæða í heiminum vegna {vírusins}${typo,suff,1-2|vírussins}.