{http://visir.is/bakarar-motmaela-fyrirhugudum-sykurskatti/article/2012120928837}∞{url} Stjórn Landssambands bakarameistara (LABAK) mótmælir harðlega fyrirhugaðri 800 milljón króna hækkun á vörugjöldum á matvæli sem boðuð er í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Vörugjöldin eiga að beinast að sykri í matvælum og eru réttlætt með manneldissjónarmiðum og aðgerðum gegn offitu. Í mótmælum bakara segir að litlar líkur séu á að hækkun vörugjalda á sykraðar vörur hafi áhrif á heilsu- eða holdafar landsmanna „enda gerir ríkisstjórnin ekki ráð fyrir breyttri neysluhegðun heldur miðar tekjurnar við óbreytt innkaupamynstur".  Svo segir í mótmælum bakara: Auknar álögur á matvæli um 800 milljónir á ári koma hart niður bæði á fyrirtækjum og neytendum. Hækkun vörugjalda hlýtur óhjákvæmilega að hækka vöruverð, sem aftur eykur verðbólgu og þar með greiðslubyrði af lánum, bæði heimila og fyrirtækja.  Stjórn LABAK skorar á stjórnvöld að draga hugmyndir um hækkun vörugjalda á matvæli til baka og gerir þá kröfu að lagt verði mat á þann kostnað, sem ríki og matvælafyrirtæki verða fyrir vegna {vörugjaldskrfisins}${typo,stem,0-1|vörugjaldskerfisins}, og hann borinn saman við tekjurnar sem ríkið telur sig þurfa að hafa af vörugjöldum.