{http://visir.is/hustokumadur-fangelsadur-i-fyrsta-sinn/article/2012120928903}∞{url} Rúmlega tvítugur maður var nýverið dæmdur til fangelsisvistar í Bretlandi fyrir að gera hús sem hann átti ekki að dvalarstað sínum. Þetta er í fyrsta sinn sem hústökumaður er dæmdur eftir nýrri löggjöf um hústökur sem tók gildi 1. september í ár í landinu. Það var {Alex Haigh}∞{eng} sem var dæmdur til 12 vikna fangelsisvistar fyrir hústöku en frá þessu er greint í breska blaðinu {The Guardian}∞{eng}. Breska lögreglan handtók {Haigh}∞{eng} ásamt tveimur öðrum í íbúð á {Cumberland Street}∞{eng} í byrjun september. Þeir voru allir ákærðir fyrir hústöku, {Haigh}∞{eng} hefur þegar verið sakfelldur en hinir tveir bíða dóms. Löggjöfin sem um ræðir gerir hústökur refsiverðar, þ.e. að slá eign sinni á hús sem standa auð eða gera þau að dvalarstað sínum. Hér eftir liggur allt að sex mánaða fangelsi eða fimm þúsund punda sekt við hústökum í Bretlandi. Talsmenn samtaka hústökufólks segja lögin ósanngjörn. ,,Þetta er sorgardagur í sögu þjóðar okkar, þegar ungur, ómótaður einstaklingur er settur í fangelsi fyrir það eitt að reyna að hafa þak yfir höfuðið,'' sagði {Rueben Taylor}∞{eng}, frá samtökunum þegar hann heyrði af dómnum. ,,Raunverulegi glæpurinn eru þær 930 þúsund íbúðir sem standa auðar {víðsvegar}${cmp,adj+adv,1-2|víðs vegar} um Bretland, ekki fólkið sem reynir að koma þeim aftur í notkun.''