{http://visir.is/danskir-prestar-messa-fyrir-tomum-kirkjum/article/2012120928929}∞{url} Á sex mánaða tímabili fyrr í ár messuðu prestar á Fjóni í Danmörku fyrir galtómum kirkjum í yfir 60 sunnudagsmessum. Það er orðin sjaldgæf sjón að sjá fólk í hefðbundnum messum í dönskum kirkjum. Á fyrrgreindu sex mánaða tímabili voru sex eða færri sóknarbörn mætt í samtals yfir 600 sunnudagsmessur á Fjóni. Það var {Kresten Drejergaard}∞{eng} biskup á Fjóni sem bað presta sína að skrá hjá sér síðustu sex mánuði þegar færri en sex sóknarbörn mættu í messu. Biskupinn vill bregðast við þessu með því að fækka messunum um helming, það er þær verði haldnar annan hvern sunnudag.  Þetta kemur fram í umfjöllun {Politiken}∞{dan} um málið. Þar segir raunar að slíkt fyrirkomulag sé þegar til staðar í minnstu landsbyggðarsóknunum á Fjóni. Málið verður þó ekki á könnu {Drejergaard}∞{dan} því biskupinn lætur af störfum fyrir áramótin sökum aldurs.  {Manu Saaren}∞{dan} kirkjumálaráðherra Danmerkur er {hinsvegar}${cmp,dem+adv,1-2|hins vegar} sammála biskupnum um að bregðast verði við þessari stöðu og augljósu áhugaleysi fólks á að sækja messur. Ráðherrann ætlar að taka málið upp á næsta fundi biskuparáðs Danmerkur. Fámenni í messum er ekki bundið við Fjón. Áður hefur komið fram í fréttum að á síðustu árum hafa Danir almennt haft lítinn áhuga á að sækja {messur}¥{messur.}