{http://visir.is/heimalningurinn-tota-gladdi-nemendur-solvalla/article/2012309289983}∞{url} Það hljóp á snærið hjá nemendum leikskólans Sólvalla í Grundarfirði í vikunni sem leið. Þá kíkti {heimalingurinn}${typo,der,0-1|heimalningurinn} Tóta í heimsókn. Tóta er einstaklega ljúf og góð og var ekki feimin við að láta forvitna krakka knúsa sig og kjassa. Heimsóknin vakti mikla lukku þó svo að Tóta hafi ekki fengið að kynna sér innviði leikskólans, en lét sér nægja að bíta gras fyrir utan á meðan nemendur lærðu inni undir dyggri leiðsögn fóstranna. Þegar útivistin hófst varð svo glatt á hjalla og veittu krakkarnir {heimalingnum}${typo,der,0-1|heimalningnum} mikla athygli. Það má svo geta þess að Tóta er ættuð frá Bergi, eins og einn nemandi skólans, og fékk góðfúslegt leyfi til að fylgja eiganda sínum í skólann þennan dag.