{http://visir.is/joni-pali-sagt-upp-storfum-hja-fylki/article/2012120809788}∞{url} Jóni Páli Pálmasyni, þjálfara meistaraflokks kvenna hjá Fylki, hefur verið sagt upp störfum. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Ásgrímur Helgi Einarsson og Kjartan Stefánsson stýra liði Fylkis út tímabilið. Fylkir situr í 7. sæti Pepsi-deildar kvenna með ellefu stig, jafnmörg og Afturelding og Selfoss sem hafa lakari markatölu. Árbæjarstelpur hafa tapað síðustu fjórum deildarleikjum sínum auk þess {að}€{x|sem} liðið féll út í átta liða úrslitum Borgunarbikars kvenna. Á heimasíðu Fylkis er Jóni Páli þakkað fyrir hans störf og honum óskað velfarnaðar. Jón Páll tók við liði Fylkis haustið 2010. Liðið hafnaði í 5. sæti {deildarinnnar}${typo,suff,3-2|deildarinnar} og komst í undanúrslit bikarkeppninnar.