{http://visir.is/viglundur--arion-gerdi-lista-yfir-fyrirtaeki-til-ad-hafa-avinning-af/article/2012120829918}∞{url} Ljóst er að skuldunautum Arion banka var mismunað í uppgjöri við bankann eftir efnahagshrunið, segir Víglundur Þorsteinsson, fyrrverandi forstjóri BM Vallár. Hann segir að stjórnvöld hafi ekki farið eftir reglum neyðarlaganna, sem ríkisstjórn Geirs H. {Haarde}¥{x| setti}. Líklegt sé að ráðherrar í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, einstakir starfsmenn nýju bankanna og skilanefnda hafi gerst brotlegir við ýmis ákvæði íslenskra laga. Víglundur boðaði til blaðamannafundar á Höfðatorgi klukkan hálftvö í dag þar sem hann ræddi stöðu mála. „Í skýrslu fjármálaráðherra um endurreisn viðskiptabankanna, sem birt var í mars 2011 er lýst atburðarás sem stangast á við reglur neyðarlaganna. Þetta varð til þess að undirritaður hóf eftirgrennslan um mál sem fjallað er um í skýrslunni," segir hann. Víglundur segir að eftir að fjármálaráðuneytið neitaði að veita umbeðnar upplýsingar hafi verið leitað til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem hafi synjað sér um aðgang að samningum um endurmat á lánasöfnum sem færð voru úr Kaupþingi hf. yfir í Arionbanka. Úrskurðurinn staðfesti hins vegar að í Arionbanka var gerður listi yfir skuldara sem vinna skyldi á til ávinnings fyrir skilanefndina. „Sú vinna fór fram að frumkvæði og undir verkstjórn ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms. Þá staðfestir úrskurðurinn að á listanum var meðal annarra að finna nafn fyrirtækis míns B.M. Vallár {hf}${abp,0-1|hf.}," segir hann. Víglundur segir að staða Gamla Kaupþings gagnvart Nýja Kaupþingi hafi verið miklu verri en staða hinna gömlu bankanna samkvæmt skýrslu fjármálaráðherra. Skilanefnd Kaupþings hafi skuldað nýja bankanum 38 milljarða en í hinum bönkunum hafi staðan verið sú að nýju bankarnir skulduðu þeim gömlu. Í skýrslunni sé því lýst hvernig íslenska ríkið afhenti skilanefnd Kaupþings, sem fulltrúa erlendra kröfuhafa, nýja bankann og {gefið}£{x|gaf} þeim veiðileyfi á skuldara til að láta þá standa undir skuldum skilanefndarinnar. Til að ná árangri sé ljóst {}¥(x|að) ekkert jafnræði hafi verið gagnvart skuldurum heldur hafi verið sótt að þeim sem fengur var í, einstaklingum jafnt sem fyrirtækjum. Með þessu verklagi sé líklegt að ráðherrar, einstakir starfsmenn nýju bankanna og skilanefndanna hafi gerst brotlegir við ýmis ákvæði íslenskra laga sem refsingar eru lagðar við. Víglundur segir að full ástæða sé til þess að þetta mál verði {skoða}£{x|skoðuð} mun betur og hann hafi þegar óskað skriflega eftir nánari upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu.