{http://visir.is/segja-miklu-minna-magn-hafa-lekid-i-sjoinn/article/2012120829940}∞{url} Forsvarsmenn Eimskipafélags Íslands telja að miklu minna magn olíu hafi runnið úr Goðafossi í Óslóarfirði en norsk yfirvöld halda fram og hafa fengið sjálfstæðan rannsóknaraðila til að fara yfir málin. Stofnun {hafs-}¢{abp,1-0|hafs} og stranda í Noregi, eða {Kystverket}∞{nor} eins og stofnunin heitir þar í landi, fer fram á að Eimskip greiði hátt í tvo milljarða króna í skaðabætur vegna strands Goðafoss í Óslóarfirði í febrúar árið 2011. Talsmaður strandgæslunnar, {Johan Marius Ly}∞{nor}, segir í viðtali við {Aftenposten}∞{nor} í gær að krafist verði skaðabóta vegna hreinsunarstarfs eftir að Goðafoss strandaði, en talið er að meira en 100 tonn hafi lekið í hafið í firðinum. Ólafur {William}∞{eng} Hand upplýsingafulltrúi Eimskips, er ósáttur við að heyra af slíku í norskum {fjölmiðlun}¢{typo,suf,n-m|fjölmiðlum}. „Að sjálfsögðu hefðu menn átt að setja sig í samband við okkur áður en þeir fara með svona í fjölmiðla. Annað er bara mjög óeðlilegt," segir hann.  Hann segir að þessi krafa muni þó ekki hafa áhrif á daglegan rekstur fyrirtækisins þar sem það sé vel tryggt.  Í {Aftenposten}∞{nor} segir einnig að það vegi þungt að {skiptstjórinn}${typo,suf,1-0|skipstjórinn} á Goðafossi beri mikla ábyrgð á strandinu. Hann hafi verið einn í brúnni þegar skipið strandaði, hann hafi ekki vitað nákvæmlega hvar skipið var auk þess sem farmur á þilfarinu hafi byrgt honum sýn. Ólafur segir að skipstjórinn njóti fulls traust hjá fyrirtækinu, ekki sé hægt að skella skuldinni á einn mann þegar svona stórslys verða. Minnir hann á að norski lóðsinn fór fyrr frá {broði}¢{meta,stem,ro-or|borði} en gert er ráð fyrir.