{http://visir.is/smygludu-fikniefnum-i-gegnum-bretland---loks-gripnir-a-islandi/article/2012120909453}∞{url} Mál þriggja karlmanna sem ákærðir eru fyrir fíkniefnasmygl var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Einn mannanna er ákærður fyrir að skipuleggja smyglið en hinir tveir fyrir að smygla fíkniefnunum frá {Porto}∞{por} í Portúgal til Lundúna og þaðan til Keflavíkurflugvallar þar sem þeir voru loksins stöðvaðir. Mennirnir földu efnið, sem var kókaín, í {Nivea}∞{eng} brúsa, en alls fundust um 190 grömm af efninu í brúsanum. Úr því má vinna 280 grömm af kókaíni. Mennirnir tóku ekki afstöðu til sakarefnanna í þingfestingu {málsin}${typo,suff,0-1|málsins} í gær og var því frestað fram á mánudag.