{http://www.visir.is/fraegir-fjolmenntu-a-frost/article/2012120909370}∞{url} Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga {mættu}£{x|mætti} á frumsýningu kvikmyndarinnar Frost í leikstjórn Reynis Lyngdal í Sambíó Egilshöll {i}${vow,stem,a-á|í} gærkvöldi. Eins og sjá má skein gleðin úr hverju andliti.  Þá má einnig sjá myndir úr eftirpartý sem haldið var á veitingahúsinu B5 í Bankastræti. Frost fjallar um ungt par, Öglu, sem er jöklafræðingur, og Gunnar, kvikmyndagerðarmann, sem koma að mannlausum rannsóknarbúðum á hálendi Íslands. Leiðangursmenn virðast hafa horfið á dularfullan hátt og Agla og Gunnar standa frammi fyrir óþekktu og banvænu afli. Með aðalhlutverkin fara Björn Thors, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Helgi Björnsson, Hilmar Jónsson, Valur Freyr Einarsson og eiginkona Reynis, Elma Lísa Gunnarsdóttir.