{http://visir.is/aetla-ekki-ad-skipta-ser-af-hugsanlegu-logbroti-norska-hersins/article/2011110619242}∞{url} Íslensk stjórnvöld ætla ekki að aðhafast frekar í tengslum við hugsanlegt lögbrot norska hersins hér á landi. Lítil sem engin samskipti hafa verið á milli íslenskra og norskra stjórnvalda vegna málsins. Hilmar Páll Haraldsson, sem gegnir herþjónustu í Noregi, hefur í þrígang komið hingað til lands á undanförnum árum nú síðast í febrúarmánuði til að kynna starfsmöguleika í norska hernum. Norskur herskóli hefur borgað ferðir Hilmars til Íslands. Þessar kynningar gætu stangast á við hundruðustu og fjórtándu grein almennra hegningarlaga eins og Sigurður Líndal, lagaprófessor hefur bent á, - en það {}¥(x|er) refsivert samkvæmt lögunum að ráða menn innan íslenska ríkisins til erlendrar herþjónustu. Kynningar þessar hafa farið fram með leyfi skólastjórnenda í þremur framhaldsskólum hér á landi, Verslunarskóla Íslands, MR og menntaskólanum Hraðbraut. {menntamálaráðherra}¢{cap,stem,m-M|Menntamálaráðherra} hefur sent bréf á alla framhaldsskóla í landinu og farið þess á leit að kynningar af þessu tagi verði framvegis bannaðar innan veggja skólanna. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneyti stendur ekki til að aðhafast frekar í málinu. Utanríkisráðuneytið hefur ekki verið í sérstöku sambandi við norska {sendirráðið}${typo,cmp,1-0|sendiráðið} vegna þessa máls og þær upplýsingar fengust hjá norska varnarmálaráðuneytinu í dag að engin fyrirspurn hefði borist frá íslenskum stjórnvöldum. Sigurður Líndal sagði í samtali við norska ríkissjónvarpið í gær að ef til vill væri hægt leysa þetta mál með afsökunarbeiðni frá Hilmari og öðrum {hlutaðaeigandi}${typo,cmp,1-0|hlutaðeigandi} aðilum. Hilmar Páll kvaðst hins vegar í samtali við fréttastofu í dag ekkert hafa íhugað að biðjast afsökunar. Þetta mál {sé}£{x|væri} alfarið í höndum íslenskra og norskra stjórnvalda.