{http://visir.is/jon-gnarr-skaladi-vid-eldri-borgara---mojito-spiladi-fyrir-dansi/article/2012120909309}∞{url} Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, og Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Hrafnistu, skáluðu í bjór þegar nýr salur dvalarheimilis aldraðra, Hrafnistu Reykjavíkur, var vígður í dag. Salurinn hlaut nafnið Skálafell en {bogarstjórinn}${typo,stem,0-1|borgarstjórinn} klippti á borðann og hélt ræðu við tilefnið. Þar baðst hann meðal annars afsökunar á seinaganginum við að veita dvalarheimilinu vínveitingaleyfi, en það mál vakti töluverða athygli í fjölmiðlum í ágúst. Fjöldi gesta voru viðstaddir vígsluna, bæði íbúar á dvalarheimilinu {sem}¥{0} og aðstandendur. Auk bjórsins var hægt að bragða á kaffi og með því. Flestir héldu sig þó við kaffið. Þá steig hljómsveitin {Mojito}∞{eng} á stokk og spilaði fyrir gesti. Hér fyrir neðan má skoða myndir frá glæsilegum salnum.