{http://www.visir.is/lloris-aetlar-ad-funda-med-villas-boas/article/2012120919977}∞{url} Franski landsliðsmarkvörðurinn {Hugo Lloris}∞{fra} er nýkominn til {Tottenham}∞{eng} og þegar hefur verið mikið drama í kringum hann þar sem ekki er útlit fyrir að hann verði markvörður númer eitt hjá félaginu. Ekki strax í það minnsta. {Brad Friedel}∞{eng} hefur verið að spila vel fyrir Spurs og það er því erfitt fyrir stjórann, {Andre Villas-Boas}∞{eng}, að henda Kananum aldna á tréverkið. Á móti kemur að {Lloris}∞{fra} er almennt talinn vera einn besti markvörður heims og líklega erfitt að geyma slíkan mann á bekknum. Líka af því hann á að vera {framtíðarmarkv0rður}${typo,stem,0-ö|framtíðarmarkvörður} liðsins. {Lloris}∞{fra} viðurkennir að hafa áhyggjur af málinu og hefur beðið um fund með stjóranum.