{http://www.visir.is/sabella--messi-er-hamingjusamur/article/2012120908982}∞{url} Þó svo að {Cristiano Ronaldo}∞{spa} segist vera óhamingjusamur hjá {Real Madrid}∞{spa} er {Lionel Messi}∞{spa} í skýjunum, bæði með {félasgliði}${meta,stem,sg-gs|félagsliði} sínu og landsliði. {Messi}∞{spa} hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félagsliði sínu og nú loksins er honum farið að ganga vel með landsliðinu líka. Hann skoraði eitt mark í 3-1 sigri Argentínu á Paragvæ um helgina en það var glæsilegt mark - beint úr aukaspyrnu. Hann hefur nú skorað tíu mörk í síðustu sex landsleikjum. {„Messi}∞{spa} er hamingjusamur," sagði landsliðsþjálfarinn {Alejandro Seballa}∞{spa}. „Hann er upp á sitt allra besta og sýnir það á vellinum. Þegar honum líður svona vel er vel mögulegt að hann eigi eftir að veita okkur margar fleiri ánægjustundir." Sjálfur var {Messi}∞{spa} búinn að lýsa því hversu ánægður hann er nú í landsliðinu. „Það er ótrúlegt að fá svona jákvæð viðbrögð frá stuðningsmönnunum," sagði {Messi}∞{spa}.